Áfangalýsing:
Í þessum áfanga er fjallað
um framleiðslu raforku og hvernig henni er dreift um sveitir og bæi, allt að
neysluveitu notanda. Lögð er áhersla á öryggismál í tengslum við umgengni við
rafmagn og hættur útskýrðar í máli og myndum. Nemendur fá æfingu í að leggja
lagnir í tiltekið lagnarými þar sem þeir fylgja ákvæðum reglugerðar og stöðlum
um raforkuvirki. Fjallað er enn frekar um raflagnaefni, efnisfræði rafbúnaðar og
annan búnað í minni neysluveitum. Gerðar eru öryggismælingar á neysluveitu.
- Teacher: Páll Friðriksson